Desember 2009
Vefurinn www.efnavernd.is formlega tekinn í notkun.
Mars 2009
Ný reglugerð um flokkun, merkingu og umbúðir efna og efnablandna er væntanleg seinna á árinu. Í Umhverfisstofnun (http://www.ust.is/ ) er nú unnið að nýrri reglugerð um flokkun og merkingu efna og efnavara sem kemur í stað núgildandi reglugerðar nr. 236/1990. Nýja reglugerðin mun byggja á reglugerð Evrópusambandsins nr. 1272/2008 (þekkt undir skammstöfuninni CLP (classification, labelling and packaging)), sem gekk í gildi í upphafi ársins 2009 og kemur í stað eldri tilskipana, nr. 67/548/EBE og 1999/45/EB. Með nýju reglugerðinni verður tekin upp samræmd flokkun og merking hættulegra efna á heimsvísu, ný varnaðarmerki og nýir hættuflokkar og hættu- og varnaðarsetningar þannig að framundan eru miklar breytingar.
Mars 2009
Loksins - EFNAVERND ehf. er komið með eigin vef. Vefurinn efnavernd.is er kominn í loftið!
Október 2008
EFNAVERND ehf. fær viðurkenningu Vinnueftirlits ríkisins sem “Þjónustuaðili með áherslu á öryggi, slysahættu og efnamengun á vinnustöðum.”
Apríl 2008
Skrifað undir samning við sænsku ráðgjafaskrifstofuna GOODPOINT A/S í Stokkhólmi um að EFNAVERND ehf. sjái um gerð öryggisblaða fyrir íslenskan markað fyrir viðskiptavini stofunnar (einkaréttur).