Fyrirtækið

EFNAVERND var stofnað 1997 (sem EFFI ráðgjöf og þjónusta) til að mæta þörfum fyrirtækja fyrir aðstoð við gerð öryggisblaða (MSDS) og varnaðarmerkinga fyrir efnavöru og aðra merkingarskylda vöru, auk ráðgjafar og aðstoðar við tengd málefni. Þar er helst að nefna aðstoð við skráningar skráningarskyldra efna eins og plöntulyfja og eiturefna og svo öryggismál á vinnustöðum. Síðustu ár hafa hverskyns tæknilegar þýðingar einnig orðið þýðingarmikill þáttur í starfseminni. Vel er fylgst með öllum nýjungum og breytingum á lögum og reglugerðum og gott samband er við eftirlitsaðila ríkis og sveitarfélaga.
Fyrirtækið var skráð sem einkahlutafélag 2004.

Viðskiptavinir

Viðskiptavinir okkar eru innflytjendur, framleiðendur og þjónustufyrirtæki, s.s. heildsölur, verslanir, olíufélög, stóriðja, orkufyrirtæki og efna- og lyfjaframleiðendur. Nauðsynlegt er að lögbundin upplýsingagjöf fyrirtækja sé skv. reglum til að draga úr líkum á slysum og til að firra fyrirtæki óþarfa kostnaði þegar slys verða.

Siðareglur - trúnaður

EFNAVERND ehf. er sjálfstætt fyrirtæki og starfar óháð öðrum fyrirtækjum, stjórnvöldum og eftirlitsaðilum. Fullur trúnaður er við viðskiptavini og upplýsingar ekki látnar þriðja aðila í té nema í fullu samráði við viðskiptavininn. Góð samskipti eru við eftirlitsaðlia, stofnanir og ráðuneyti sem fara með stjórnsýsluvald á þeim sviðum sem snerta starfsemi Efnaverndar ehf.

Efnavernd - staðsetning
Efnavernd - Logo

EFNAVERND ehf.
Breiðagerði 10, 108 Reykjavík
Framkvæmdastjóri, Friðrik Friðriksson
Sími og fax 588 8130, GSM 866 3105
Netfang: efnavernd(á)efnavernd.is
Vefur: www.efnavernd.is
Kennitala: 420704-2080
Virðisaukaskattsnúmer: 83474


EFNAVERND ehf. · Breiðagerði 10 · 108 Reykjavík · Sími/fax 588 8130· GSM 866 3105 · Netfang: efnavernd[á]efnavernd.is