Varnaðarmerkingar

Vörur sem falla undir reglur um varnaðarmerkingar eru m.a. allir úðabrúsar, efnavörur til iðnaðar og rannsókna, efni til prentiðnaðar, framköllunarefni, plöntulyf, stýri- og útrýmingarefni, sprengiefni, leysiefni, lím, lökk og sumar málningartegundir, sótthreinsi-, hreingerningar- og hreinsiefni fyrir matvæaiðnað, heilbrigðiskerfið og til heimilisnota, snyrtivörur, ýmsar olíuvörur og aðrar vörur fyrir bifreiðar og önnur vélknúin farartæki. Um plöntulyf, illgresiseyða, stýri- og útrýmingarefni, sprengiefni og snyrtivörur gilda einnig sér reglugerðir.

Varnaðarmerking er ákvörðuð (og hvort hún er nauðsynleg) eftir efnainnihaldi vöru eins og því er lýst af framleiðanda í öryggisblöðum (MSDS) og skv. efnalistum viðkomandi relgugerða.

Viðskiptavinur fær skjal (PDF) um vöruna með varnaðarmerkingunni eða úrskurði um að varan sé ekki merkingarskyld eftir því sem við á. Viðskiptavinurinn hefur þannig skjalfest álit Efnaverndar á merkingarskyldu/merkingu vörunnar t.d. fyrir eftirlitsaðila ef þörf krefur. Fyrir kemur að verslunarfyrirtæki þurfi að taka vörur úr sölu tímabundið með tilheyrandi skaða meðan unnið er að merkingum að kröfu eftirlitsaðila. Hagkvæmara er að vinna lögbundnar varnaðarmerkingar í tíma, t.d. áður en vörusending kemur í hús.


Varnaðarmerki

 

 

 

 

 

EFNAVERND ehf. · Breiðagerði 10 · 108 Reykjavík · Sími/fax 588 8130 · GSM 866 3105 · Netfang: efnavernd[á]efnavernd.is