Öryggi á vinnustöðum

Ráðgjöf um öryggi og efnameðferð á vinnustöðum. Úttektir, hættugreining og hættumat, öryggisskýrslur, forvarnir, slysavarnir.

EFNAVERND ehf. er viðurkennt af Vinnueftirliti ríkisins sem “Þjónustuaðili með áherslu á öryggi, slysahættu og efnamengun á vinnustöðum.”

Öryggisblöð (MSDS) - þekking og upplýsingar í allra þágu.
Réttar upplýsingar um skaðsemi fyrir heilsu og umhverfi eru forsenda þess að hægt sé að varast þær hættur sem meðhöndlun og notkun efnis eða vöru getur haft í för með sér. Öryggisblöð á eigin tungumáli og réttar merkingar eru sjálfsögð réttindi þeirra sem vinna með hættuleg efni. Þegar vinnuveitandi hefur sannanlega upplýst starfsmenn um mögulegar hættur á vinnustaðnum og þær upplýsingar liggja fyrir og starfsmenn geta kynnt sér þær eftir þörfum, bera vinnuveitandi og starfsmenn, að öðru jöfnu, sameiginlega ábyrgð á slysavörnum og afleiðingum slysa. Bótaábyrgð er þar með talin.

 

Öryggi á vinnustöðum

 

 

 

 

 

EFNAVERND ehf. · Breiðagerði 10 · 108 Reykjavík · Sími/fax 588 8130 · GSM 866 3105 · Netfang: efnavernd[á]efnavernd.is